Little lamb

Bambus innlegg - 2 lög

Vörulýsing

Auktu rakadrægnina í taubleyjunum til muna þessum þunnu en rakadrægu bambus innleggjum frá Little Lamb án þess að þykkja bleyjurnar! Nauðsynjavara fyrir taubleyjufjölskylduna og hentar mjög vel sem nætur bústerar eða fyrir langar bíl- og flugferðir.

Þessi innlegg eru hönnuð þannig að þeir draga bæði hratt og vel í sig. Bambusinn er rakadrægur af náttúrunnar hendi en svo er það efnið sem er ofið á byltingarkenndan hátt þannig það myndast andrými milli bambuslaga sem gerir það að verkum að innleggið dregur hraðar í sig. Þannig verður innleggið hvorki of blautt upp við húð barnsins og tryggir því hámarks þægindi og frábæra lekavörn.


Efni og stærð

90% bambus viscose
10%  polyester

13 x 33cm (passar í OS bleyjur og hægt að nota sem búster með öðru innleggi eða tvö innlegg saman)

Framleiðandi mælir með þremur þvottahringjum áður en bústerarnir eru teknir í notkun að tryggja hámarksrakadrægni

990 kr

Áætlaður afhendingartími milli desember 14 og desember 16.

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

990 kr

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.