Ai2 skel - Flexi cover - OS
Vörulýsing
Við kynnum til leiks betrumbættu skeljarnar frá Bare and Boho án innleggja!
Ath innlegg eru seld sér hér og einnig hægt að versla skeljarnar með innleggi og búster hér
Flexiskeljarnar eru fyrir nútímafjölskyldur sem vilja gæða dekurbleyjur sem eru bæði umhverfisvænar og hagkvæmar. Þær eru hannaðar með mikilli nákvæmni og með áherslu á virkni og stíl.
Flexiskeljarnar eru hagkvæmar vegna þess að þú þarft bara nokkrar skeljar á móti innleggjum. Þú notar sömu skeljarnar aftur og aftur en þurrkar á milli, nema ef kúkur hefur farið í skelina. Það eina sem þú skiptir um er innleggið sjálft sem er fest í með smellu.
Hver skel er með tveimur filmum af vatnsheldu polýester sem hefur verið endurunnið uppúr sjónum. Það er auðvelt að þurrka af innra laginu og er það einnig vatnshelt. Að notast við Ai2 kerfi eins og þetta er virkilega þægilegt þegar það á að skipta um á ferðinni og einnig þægilegt fyrir þá sem eru ekki vanir taubleyjum.
Hver skel er með tvöfaldum lærateygjum sem býður upp á hámarks lekavörn.
Hver bleyja er með panel að aftan sem er hannað til þess að koma í veg fyrir að leki uppfyrir. Innleggið er síðan komið fyrir undir þessum panel. Að framan er annar panell með magateygju sem kemur í veg fyrir að það leki uppfyrir að framan og passar uppá að innleggið haldist inn í skelinni. Skelin er með smellu að framan og aftan fyrr innleggin en þú ræður hvort að þú notar þær eða ekki. Einnig er hægt að nota þessar skeljar yfir prefolds og preflats.
Skeljarnar eru fyrir börn 3.5-18kg.
Eiginleikar
Notkunarleiðbeiningar
Næturbleyjusamsetningar
Efni
90% Endurunnið polyester + 10% Polyurethane Laminate
Innlegg
70% Bambus, 30% bómull + Microflís efsta lag sem er 100% polyester
Myndbönd
Um merkið
Bare and Boho er ástralskt vörumerki sem framleiðir fjölnota nauðsynjavörur fyrir börn og konur. Vörurnar þeirra eru framleiddar í Kína, í Sedex vottuðum verksmiðjum til að tryggja hreinlæti og öruggar vinnuaðstæður starfsfólks. Allur textíll frá vörumerkinu er OEKO-TEX eða GOTs vottaður og öll mynstrin eru sköpuð af áströlskum listamönnum.