Disana

Ullarbuxur - Stærðir

5.190 kr

Áætlaður afhendingartími milli desember 18 og desember 20.

Vörulýsing

"Pull-Up" ullarbuxur er algjör skyldueign fyrir fjölskyldur sem nota fitted, gas eða prefolds bleyjur því þær bjóða upp á hina fullkomnu vatnsheldu "skel" eða þekjun yfir bleyjusvæði.  Buxurnar eru úr 100% lífrænni merino ull.

Nánari upplýsingar

Ullarbuxurnar frá Disana draga ekki í sig bakteríur, anda vel, halda hita þó þær blotni, og eru rakadrægar og teygjanlegar. Þær eru úr tvöföldu lagi af ofinni ull með stroffi utan um maga og um læri svo þær passi betur. Þær koma í 5 stærðum til þess að passa sem best og í fallegum litum. 

Þær henta fullkomlega sem næturbleyjur utan um rakadrægar fitted bleyjur vegna þess hve vel þær anda en eru jafnframt rakadrægar. Þær henta ofurpissurum, heitfengnum sem og kaldfengnum börnum þar sem ullin heldur hita á köldum vetrarnóttum og kælir á heitum sumardögum. Góð þumalputtaregla er að þrífa bleyjuna á tveggja vikna fresti með lanólínlögum, en ef barnið kúkar í hana þá þarf að þvo hana. 

Kostir við ullarbleyjur

  • Þú þarft færri skeljar. 4-5 dagskeljar eru nóg fyrir allt bleyju tímabil barnsins og nóg er að eiga eina næturskel í réttri stærð.
  • Þú þarft sjaldnar að þvo skeljarnar. Oft er nóg að þvo hverja skel á 3-4 vikna fresti.
  • Ullarþvotturinn tekur mjög stutta stund, MAX 15-18 mínútur.
  • Ullin er 100% náttúruleg
  • Ull andar mjög vel og viðheldur réttu hitastigi í líkamanum svo börn hvorki svitna né soðna. Þeim verður heldur ekki kalt þó þau séu búin að pissa í bleyjuna.
  • Ullin er gerð vatnsheld með lanolíni sem er bakteríudrepandi. Lanolin brýtur niður þvag í salt og vatn sem svo gufar upp. Það má segja að ullin sé nánast sjálfhreinsandi.
  • Það er sjaldan eða aldrei vond lykt af ullinni fyrr en eftir marga daga/vikur af notkun.
  • Ef vel er hugsað um ullina getur hún enst í mörg ár, mun lengur en bleyju skeljar úr PUL. Hún gæti í raun endað á barnabörnunum!

Myndband

Þvottur og umhirða

Mikilvægt að hafa í huga

  • Það þarf ekki að preppa þessa bleyju serstaklega- hún er tilbuin eins og hún kemur.
  • Passa að vinda aldrei ull né setja í þurrkara. Best er að pressa vætuna úr í t.d. handklæði.
  • Þurrkist á flötum stað. 

Þvottaleiðbeiningar

1. Byrjaðu á því að fylla fötu eða vaskinn af ilvolgu vatni, nóg til að umkringja ullarskelina. Ekki heitara en 30 gráður.

2. Settu 1/4 úr teskeið af lanolíni fyrir hverja skel í venjulegan bolla, bættu svo Poppet ilmmola út í eða einni sprautu af barna- eða ullarsápu.

3. Bættu við nýsoðnu vatn og fylltu á bollann, hrærðu lausnina þar til lanolínið og sápan hefur leystst upp fyllilega - þegar lausnin verður mjólkurhvít er hún tilbúin.

4. Helltu vatninu úr bollanum ofan í vasann (Gakktu alltaf úr skugga um að lausnin sé ekki heitari en 30gráður - annars getur ullin þæfst)

5. Settu ullarskelina ofan í lausnina og leyfðu henni að liggja í minnst 4 tíma. 

Ef verið er að lanolínsera nýjar ullarskeljar skaltu endurtaka ferlið a.m.k. tvisvar í viðbót og óþarfi að þerra skelina á milli - bara gera nýjar lanolínlögur. Ef verið er að fríska upp á ullarskelina er nóg að setja einu sinni í lanolín lög.

6. Til að þerra skelina er gott að vinda hana í handklæði. Þú leggur skeilina á handklæði og rúllar upp handklæðinu og vindur passlega vel upp á þannig að vökvinn færist úr skelinni og í handklæðið. 

Svo skaltu leggja skelina á flatan stað fyrir þurrkun.

Efni 

Efni: 100% merino wool
Vottanir: GOTS (Global Organic Textile Standard)

Um merkið

Disana er þýskt gæðamerki sem leggur áherslu á að framleiða vörur úr eins náttúrulegum efnum og hugsast getur. Disana var stofnað fyrir 40 árum og hóf vegferð sína sem frumkvöðull í náttúrulegum taubleyjum en hefur í gegnum árin fært út kvíarnar og framleiðir einnig ullarfatnað og ullarvörur á alla fjölskylduna. 


Ullarskeljar þarf mjög sjaldan að þvo.

Í byrjun þarf yfirleitt að þvo ullina aðeins oftar en eftir því sem hún er notuð
meira og lanólínið sest betur inn í efnið, þá er hægt að fara margar vikur
milli þvotta.

  • Handþvottur eða ullarprógamm í þvottavél.
  • Notið milda ullarsápu og ekki hærra hitastig en 30°, má vera lægri hiti.
  • Þurrkist ekki í þurrkara, heldur leggið til þerris á flatan flöt.

Lanolín meðferð með lanolínmola frá Poppets

  1. Settu 1stk lanolín mola í 150-200ml af heitu vatni ofan í bolla eða krukku og hrærðu þar til molinn hefur leyst sig alveg upp og liturinn á vatninu er orðinn skýjaður. Þú getur líka soðið lanolínmolann með vatni í potti og þá tekur þetta skemmri tíma. 
  2. Hellið lausninni ofan í bala, skál eða vask og látið kólna.
  3. Setjið ullarskelina ofan í lanolín lögurnar og kreistið skelina varlega þannig að hún blotni alveg í gegn. Leyfið svo skelinni að liggja í bleyti í lágmark 2klst og jafnvel yfir nótt ef það hentar.
    Endurtakið þetta skref 1-2x ef ullarskelin er ný án þess að þerra hana.
    Ef verið að fríska upp á notaða skel dugar að gera þetta skref 1x og í lágmark 20 mín.
  4. Vindið skelina varlega og leggið á þurrt handklæði.
    Rúllið upp handklæðinu og kreistið mestan vökva úr
    Leggið til þerris á flötum stað

    Hægt er að nota afganginn af lögunum til að fríska upp á aðra ullarskel ef það er einhver.

Blettaþvottur

  1. Láttu kalt eða volgt vatn í kaldara lagi renna beint úr krananum og á blettinn sem þarf að þvo.
  2. Nuddaðu Lanolín ullarsápustykkinu frá Poppets beint á blettinn þar til hann er horfinn og það er smá freydd sápa í ullinni.
  3. Skolaðu sápuna vel úr blettnum.
  4. Vindið skelina varlega og leggið á þurrt handklæði.
    Rúllið upp handklæðinu og kreistið mestan vökva úr
    Leggið til þerris á flötum stað.

Sjá leiðbeiningar hér fyrir ullarþvott. 


Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

6 vikna reynslutími
Við bjóðum upp á 6 vikna reynslutíma á öllum margnota bleyjum og aukahlutum fyrir Cocobutts viðskiptavini. Ef þú ert ekki ánægð/ur með kaupin þín, þvoðu þá vörurnar og skilaðu þeim innan 6 vikna frá kaupum til að fá fulla endurgreiðslu í formi inneignarnótu eða 80% endurgreiðslu kjósir þú að fá endurgreitt inn á sama kort eða

Skilmálar og skilyrði:

  • Sendingarkostnaður vegna skilanna er á þinn kostnað.
  • Allar vörur verða að vera keyptar á Cocobutts.is.
  • Skilastefna okkar er takmörkuð við ein (1) skil eða skipti frá hverju heimili.
  • Vinsamlegast hafðu samband við okkur innan fyrstu 6 viknanna eftir að þú fékkst vörurnar þínar afhentar til að senda inn beiðni um skil.
  • Allar vörur verða að vera í hreinu og nothæfu ástandi og mega ekki hafa verið soðnar, bleiktar eða illa meðfarnar. Við tökum ekki við Cocobutts vörum í lélegu ástandi.
  • Þessi reynslutími á ekki við um hreinlætisvörur, tíðavörur, koppaþjálfunarnærbuxur eða aðrar vörur sem ekki tengjast taubleyjum, sem og útsöluvörur.
  • Lestu meira

Skil
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Based on 10 reviews
90%
(9)
10%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
A
Anna K.H. (Akureyri)
Frábært næturkerfi

Þurfti smá að prófa mig áfram með þetta en þetta var mjög gott næturkerfi. Mér finnst best að hafa smellubleyju innanundir

F
Fríða M.Þ. (Reykjavik)
Mjúkar og góðar

Ég nota þessa utanyfir alva fitted og það hefur reynst mjög vel. Hef ekki lagt ullarbleyjuna í lanolin ennþá en hún heldur samt vel yfir nóttina og búin að vera í notkun í 2 vikur. Dásamlega mjuk og nær hátt uppá maga. Engin teygjuför eftir langan nætursvefn! Svo er hun líka hlý og mjög krúttleg (smá fyrirferðamikil með fitted og auka booster).

A
Adalheidur L. (Reykjavik)
Virka vel

Var óviss en ákvað að prófa þær þar sem næturbleyjurnar sem við notuðum voru að leka upp á maga þegar litla fór að sofa á maganum. Prófaði fyrst án lanolin og þá mígleka þær en hafa haldist alveg vatnsheldar eftir einn lanolin mola. Hef þvegið einu sinni og sett aftur lanolin. Virðast ætla að duga nokkuð vel. Þetta er samt frekar fyrirferðarmikið með flísliner, innleggi og fitted næturbleyju.

Á
Árný Ó. (Reykjavik)
Snilld

Þær eru mjög góðar, gera sitt gagn, eru ofur sætar og barninu verður ekki kalt þótt að það sé ekki í náttbuxum

H
Hafrún S. (Reykjavik)
Ullarbuxur!

Ákvað að skella mér á ullar vagninn og ég fekk ótrúlega góða þjónustu. Dóttir mín hafði verið mest í bréfi á nóttunni og mig langaði til þess að nota tau sem myndi halda alla nóttina. Keypti bambus fitted bleyju og ullarbuxur, dóttir mín sefur vel og svo er líka svo krúttlegt að sjá hana í svona ullarbuxum :)

Natural Disana ullarbuxur

5.190 kr

5.190 kr

Afhverju fjölnota?

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.