Almennt
Kt. 5407210410
VSK númer 141839
Ljósheimum 10, 104 Reykjavík
info@cocobutts.is
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Taubleyjuleigan fyrir nýbura er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Vefpóstur og/eða SMS er sent þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. Verslunin er lokuð alla rauða daga né annað sé tekið fram.
- Sækja í Ljósheima 10, 104 Reykjavík. Verð: 0 kr.
- Heimsending út um allt land með Dropp. Pakkar eru póstlagðir 1-3 dögum fyrir áætlaða afhendingu og jafnvel fyrr ef pakkinn skilast fyrr frá fyrri leigjanda. Afhending 1-3 virkir dagar. Verðið er 1800 kr og endursendingarmiði fylgir með.
Allar vörur eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest eða næsta virka dag ef greiðsla berst eftir klukkan 17:00. Þú getur fengið vörurnar sendar en ef þú kýst að sækja getur þú gert það án endurgjalds.
Kemur það upp að vara sé í útleigu eða geti ekki verið afhend á réttum tíma vegna einhverra ástæðna mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef afhendingardagssetning lendir á helgi eða á gulum eða rauðum degi áskiljum við okkur rétt til að seinka afhendingu eða póstlagningu til næsta virka dags.
Verð og greiðsla
Nýburaleigupakkar
- Leiguverðið á nýburableyjupakka er 497 kr. m. vsk á dag og er leigutímabilið 30 eða 60 heilir dagar.
- Leigutaki greiðir fyrir leiguna strax við bókun: 14.900 kr fyrir 30 daga leigu og 29.800 kr fyrir 60 daga leigu
- Leigutaki bókar pakkann í gegnum Google Forms og fær svo greiðsluhlekk sendan í kjölfarið með þriggja daga greiðslufrest.
- Ef leigutaki hefur ekki greitt fyrir bókaða leigu þremur dögum eftir að hann fékk greiðsluhlekk sendan lítum við svo á að hætt hafi verið við bókunina.
- Leigutaki hefur rétt á endurgreiðslu í allt að 14 daga eftir bókun. Ef leigutaki hættir við leiguna eftir þann tíma er hægt að fá inneignarnótu í netverslunina okkar.
- Hægt er að skila pakkanum fyrr ef valin er 60 daga leiga og fá dagana sem ekki voru nýttir endurgreidda í formi inneignarnótu.
- Við sendum leiðbeiningar um hvernig skal meðhöndla pakkann eftir að lokagreiðsla hefur borist.
- Breytingar á tímabili bókunnar má framkvæma með a.m.k. þriggja daga fyrirvara. Ef leigutaki vill stytta leigutímann og skila pakkanum fyrr skal hann hafa samband við okkur með tölvupósti info@cocobutts.is með a.m.k. 7 daga fyrirvara.
Gildistími samnings varir frá upphafsdegi leigu og þar til leigutaki skilar pakkanum.
- Gengur úr skugga um að innihald taubleyjupakkanna sé heilt, hreint og tilbúið til notkunar áður en þeir fara í útlán til leigutaka.
- Að fara eins vel með varninginn og hann getur:
- Þrífur bleyjurnar samkvæmt þvottaleiðbeiningum leigusala eða eins og segir til um á þvottaleiðbeiningum á varningi og sér til þess að ganga frá taubleyjunum samkvæmt leiðbeiningum leigusala áður en þær eru settar í þvott.
- Skilar innihaldi pakkans hreinu og heilu og passar upp á að ekkert vanti í pakkann þegar honum er skilað.
- Cocobutts ehf ber ekki ábyrgð á bruna, roða, kláða eða öðrum heilsufarslegum kvillum sem kunna að myndast vegna ofnæmis eða lélegrar þvottarútínu.
- Cocobutts ehf mælist til að leigutaki þrífi bleyjurnar sjálfur áður en hann byrjar að nota þær þó þær kunni að vera hreinar við afhendingu.
- Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 60.000 kr. ef leigutaki skilar ekki taubleyjupakka eins og hann leggur sig og ekki tekst að ná sambandi við hann
- Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 3500 kr. per varning sem týnist, skemmist eða skilast í slæmu ástandi sem ekki má rekja til slits vegna almennrar notkunar.
- Leigusali áskilur sér rétt til þess að endurgreiða ekki þá daga sem leigutaki nýtir ekki taubleyjupakkana ef eitthvað af ofangreindu á við.
- Leigutaki ber ekki ábyrgð á sliti varningsins vegna almennrar notkunar.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi)
Námskeiðin okkar
Námskeið og fræðsla frá Cocobutts fyrir foreldra sem vilja leiða börnin sín með virðingu í gegnum koppa- og næturþjálfun. Byggt á Solihull og Oh Crap aðferðafræðinni.