Nýburableyjuleiga Cocobutts

Besta upphafið fyrir barnið þitt

Húð nýfædds barns er ótrúlega viðkvæm.

Hún dregur í sig nánast allt sem hún snertir – og það fyrsta sem hún snertir í þessum heimi… skiptir máli.

Nýburableyjurnar frá Elskbar, sem fylgja leigupökkunum okkar, umvefja litla viðkvæma bossa með dúnmjúku, eiturefnalausu bambusefni sem andar vel og styður við náttúrulegan líkamsþroska.

Engin óþarfa efni og engin lykt sem ekki eiga heima upp við ofurviðkvæma húð.

Veldu bleyjur sem veita barninu þínu öruggt og eitufefnalaust upphaf.

  • Engin fjárhagsleg skuldbinding – þú þarft ekki að fjárfesta í öllu strax.
  • Fullkomið snið og stærð fyrir nýfædd börn – bleyjurnar í pakkanum eru sérstaklega hannaðar fyrir fyrstu vikurnar.
  • Örugg og náttúruleg efni upp við húð barnsins – mjúkar bleyjur úr eiturefnalausum bambus.
  • Allt sem þú þarft fylgir með – innlegg, skeljar, blautpoki og rafrænar leiðbeiningar.
  • Pakkarnir eru endurnýjaðir og hreinsaðir af kostgæfni – til að tryggja hreinleika og öryggi.
  • Stuðningur og leiðbeiningar frá okkur fylgja alltaf með – þú ert ekki ein/n í þessu.

Að leigja nýburapakka er fullkomin leið til að prófa taubleyjur á einfaldan og áhyggjulausan hátt. Í raun er aldrei eins auðvelt að nota taubleyjur og á nýburatímabilinu þegar barnið nærist eingöngu á mjólk því mjólkurkúkurinn má fara beint í þvottavélina 😃.

Nýburableyjur frá Elskbar

  • 24x Skeljar með bambus innra lag ásamt trifold úr bambus 

Fjölnota þurrkur

  • 10x Bambus blautþurrkur frá Little lamb
  • 10x Bambus terry þurrkur frá Poppets

Blautpokar

  • 1x Miðlungs blautpoki frá Cocobutts
  • 1x Pail Liner frá La Petite Ourse

Verð:
30 dagar: 14.900 kr.
60 dagar: 29.900 kr.

Leiðbeiningar
Með hverri leigu fylgir rafrænn leiðbeiningarbæklingur með skref-fyrir-skref upplýsingum og góðum ráðleggingum – svo þú getir byrjað með að nota taubleyjurnar af öryggi og án áhyggja.

Ástandsskoðun
Við leggjum okkur fram við að tryggja að hver pakki sé í topp ástandi – með nýlegum og vel með förnum nýburableyjum og aukahlutum. Ef slit eru áberandi, þá tökum við það úr umferð og endurnýjum það. Þannig tryggjum við hreint og áreiðanlegt taubleyjuupphaf hjá hverri fjölskyldu.

Þú getur sótt og skilað leigupakkanum þínum til okkar án endurgjalds.

Ef þú vilt fá pakkann sendan til þín þá bjóðum við upp á Dropp. Þú greiðir fyrir sendingina fram og til baka og færð endursendingarmiðann sendan með leigupakkanum. Við reynum alla jafna að senda pakkann nokkrum dögum fyrir áætlaðan afhendingardag.

Þú greiðir fyrir sendinguna við pöntun og pakkinn skal sendur til baka í síðasta lagi á lokadegi leigutímans.

  1. Þú fyllir út þetta form við skoðum hvort nýburapakki sé laus á þeim dagsetningum sem þú óskar eftir.
    Ef pakkinn er laus, búum við til leigutilvik (event) í Google Calendar og bjóðum þér að taka þátt í því til að staðfesta tímabilið.
  2. Þegar þú hefur samþykkt tímabilið í Google Calendar, færðu frá okkur greiðslulink.
  3. Þú hefur 3 daga til að ganga frá greiðslu – að þeim tíma liðnum lítum við svo á að bókun hafi verið afturkölluð.
  4. Við sendum allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar eftir að greiðsla hefur borist
  5. Þú greiðir fyrir fyrsta mánuðinn (30 dagar) sem er óafturkræft, en ef þú sérð fram á að þurfa ekki tvo mánuði (60 daga) og hefur bókað svo langan tíma þá getur þú skilað fyrr og fengið inneign fyrir ónotuðum dögum af seinni mánuðinum.

Við bókun þarftu að samþykkja þessa leiguskilmála.

Sjáðu hvað fyrri leigjendur hafa að segja um Nýburableyjuleiguna okkar