Hjálplegt efni

Koppaþjálfun í skrefum

Koppaþjálfun í skrefum fyrir 18-24mánaða

Þú ert líklega að lesa þetta blogg því þú ert að huga að því að koppa eða klósettþjálfa barnið þitt. Ég veit þér gæti fundist þetta langt blogg en þetta er krefjandi, mikilvægt en líka skemmtilegt verkefni og við viljum veita þér allar upplýsingar og möguleg bjargráð sem gætu hjálpað ykkar ferli! Fáðu þér nú einn kaffibolla og sökktu þér í þetta verkefni okkur og lestu vel og vandlega. Við erum með þér í þessu!Mundu að öll börn eru misjöfn... ... og það er hægt að kenna börnum á kopp á ýmsan hátt. Við hjá Cocobutts mælum með EC (Elimination Communication) sem gengur útá það að lesa merki barnsins og að skapa sambönd á milli orða og þarfa. Þetta blogg er þó ekki alfarið um EC þar sem það eru klárlega heil fræði útaf fyrir sig. En hér höfum við blandað saman ráðum úr EC og hefðbundinni koppaþjálfun! Hvernig veistu að barnið þitt er tilbúið fyrir koppaþjálfun?Áður en þú byrjar á koppaþjálfun skaltu ganga úr skugga um að barnið þitt sé tilbúið í þetta skref. Börn á aldrinum 18-24 mánaða eru oft að sýna fyrstu merkin um að vera tilbúin, en ekki endilega tilbúin í stífa koppaþjálfun. Flest börn eru tilbúin á aldrinum 18 mánaða til 3 ára, en hvert barn er misjafnt. Koppaþjálfun er ekki bara "allt eða ekkert" – sum börn þurfa meiri tíma og skref-fyrir-skref nálgun hentar þeim betur.Leitaðu að merkjum um að barnið sé tilbúið, eins og að sýna áhuga á baðherberginu eða eru þurr í lengri tíma. Einnig er sterkt merki þegar barnið þitt streytir mikið á móti á meðan það er verið að skipta á því. Fleiri merki: Ef bleyjan helst þurr í 2 tíma í einu Ef bleyjan er þurr eftir lúr Sýnir óþægindi þegar það er með blauta bleyju Felur sig til að pissa eða kúka Pissar sjaldnar en meira í einu Getur dregið niður og hysjað upp buxurnar sjálft Getur setið kyrrt í 2-5 mínútur Skilur og fylgir einföldum leiðbeiningum Börn þurfa ekki alltaf að vera tilbúin. Oftast nægir að þið sem foreldrar séuð tilbúin að taka þetta skref ef barnið þitt er heilbrigt og ekki með nein frávik sem tengjast þroska þess. Mundu að börn læra best með því að fylgjast með! Við mælum með að taka börnin snemma með inná klósettið þegar við förum sjálf. Þannig læra þau að þetta sé hluti af okkar eðlilega lífi og að allir nota klósettið! Ef þau hafa engan áhuga á þessu af fyrra bragði þá notaru jákvæða hvatningu, talar um klósettið, piss og kúk á jákvæðu nótunum í aðdraganda þjálfunar og lætur það vita að nú sé bleyjutímabilið að taka enda og barnið sé að fara að takast á við nýtt og spennandi verkefni sem er að læra að nota klósettið eins og mamma og pabbi eða stóru krakkarnir. Hvað þarf? Það sem þú þarft er koppur (helst í öllum baðherbergjum ef það eru nokkur á heimilinu) og/eða klósettseta og kollur, og góðar þjálfunarnærbuxur. Við hvetjum þig til þess að venja barnið strax á klósettið svo þú sleppir við að venja barnið af kopp seinna meir. Einnig er mjög gott að eiga blautpoka með tveimur hólfum svo þú getir geymt hrein aukaföt og pissublaut föt í eina og sama pokanum sem er bæði vatnsheldur og heldur lykt í skefjum. Einnig þarftu þolinmæði og hugarfar sem er litað af jákvæðni og stuðning. Við mælum eindregið með þjálfunarpakkanum okkar! Búðu til jákvæða upplifun Gerðu koppaþjálfun að jákvæðri upplifun fyrir barnið þitt. Búðu til þægilegt og aðlaðandi rými á baðherberginu og hrósaðu barninu þínu fyrir viðleitni þeirra. Notaðu jákvæða styrkingu, helst í formi orða, til þess að hvetja barnið þitt til að nota klósettið. Þegar barninu tekst svo að gera stykkin sín í klósettið í fyrsta skipti skiptir máli að hrósa því vel og gera því ljóst að það stóð sig vel. Þá er líklegra að barnið leitist við að endurtaka leikinn þegar því er næst mál.  Það er mjög mikilvægt að skamma ekki barnið ef það verður slys. Það á ekki að skammast sín fyrir það að vera að læra. Því jákvæðari sem upplifunin er því líklegra er að barnið vilji halda þessu ferli áfram. Ekkert sjónvarp eða iPad í bleyjulausum tímaBörn breytast í litla uppvakninga þegar þau horfa. Þau slökkva á heilanum og kveikja bara á slökunartakkanum. Þá verða langoftast slys. Samræmi er lykilatriði Samræmi er lykilatriði þegar kemur að koppaþjálfun. Haltu þig við rútínu og farðu með barnið þitt á koppinn, en ekki þvinga það. Það er mikilvægt að vera þolinmóður og skilningsríkur í gegnum ferlið. Mikilvægt er að fylgjast með atferli barnsins allan tímann og hafa augun á því á öllum vökutímum. Þjálfunin snýst um að taka eftir því að barnið þarf að pissa og koma því á klósettið áður en það pissar á gólfið eða í buxurnar. Á þessu stigi mælum við með að barnið sé bert að neðan heimafyrir eða þá í venjulegum nærbuxum. Það er mikilvægur partur af ferlinu að barnið sjái hvert pissið og kúkurinn fer ef barnið fer ekki á klósettið. Þeim bregður oft í fyrstu og þá er mikilvægt að sýna skilning og útskýra fyrir barninu að nú eigi pissið og/eða kúkurinn heima í klósettinu, ekki í nærbuxunum eða á gólfinu. Svo hjálpist þið að að þrífa þetta (eða þú og barnið horfir á) og endurtakið leikinn! Það er mikilvægt að þú talir við barnið í boðhætti þegar þú séð að barninu er mál. Ef þú spyrð barnið hvað það þurfi að pissa þá eru 99% líkur á því að það svari neitandi þó það sé á iði og þurfi að pissa. Mundu að barnið er að læra nýja lífskúnst og þjálfa nýtt skynfæri. Það er vant því að láta vaða, hvar sem er og hvenær sem er. Það mun gerast að það gleymi sér, sérstaklega þegar það er í dundi. Það er þitt verkefni að einbeita þér að verkefninu, ekki barnins. Þú átt að grípa barnið þegar því er mál og segja „Ég sé að þú þarft að pissa, förum á klósettið núna“.  Í hvert skipti sem barninu tekst að pissa í kopp eða klósett er mikilvægt að þú hrósir því vel. Sum börn þurfa einhverja meiri umbun eins og stimpil, límmiða eða jafnvel nammi. Láttu það eftir þér. Verðlaunin þurfa að vera nógu hvetjandi svo barnið nenni þessu. Fyrir þessi yngri, hafðu augun opin gagnvart merkjum og búðu til tengingar  Það er öflugt að hjálpa barninu að tengja tilfinningar við orð, þannig að þau geta  notað orðin seinna meir til þess að láta vita að þau þurfa að fara á klósettið. Sem dæmi er hægt að halda barni yfir klósettinu (eða hafa það á koppnum) og nota orðið "Kúka!" þegar það kúkar. Hvort sem barnið er að gera stykkin sín eða er búið að því að þá er mikilvægt að hafa orð á því og segja „pissa“ eða „kúka“ og taka það upp, fara með það á koppinn eða á klósettið og skeina því á koppnum/eða klósettinu. Þegar barnið er farið að tengja orðin við athafnirnar og segja þau upphátt er hægt að minna það á að láta vita áður en það lætur vaða þegar það verða slys.Skref-fyrir-skref koppaþjálfun 1. Byrjaðu að kynna hugmyndina Settu koppinn á baðherbergið og leyfðu barninu að sjá hann og jafnvel leika sér með hann. Lesið bækur um koppaþjálfun saman. Leyfðu barninu að sjá að allir fara á klósettið og útskýrðu hvað gerist. 2. Kenndu barni þínu að tengja þarfir við orð Það hjálpar barninu að átta sig á því sem er að gerast og byggir upp tengingar. Þegar þú skiptir á barninu, segðu "Þú pissaðir í bleyjuna. Bráðum ferðu að pissa í koppinn." Þegar barnið kúkar, segðu "Þú kúkaðir. Kúkur fer í koppinn." 3. Leyfðu barninu að æfa sig Láttu barnið sitja á koppnum í fötunum fyrst til að venjast honum. Þegar það er tilbúið, láttu það sitja á koppnum berrassað eftir svefn eða bleyjuskipti. Ekki pressa á að það þurfi að pissa – það snýst fyrst og fremst um að venja það við upplifunina. 4. Skapaðu venjur Settu barnið á koppinn á ákveðnum tímum dags (t.d. eftir mat og fyrir svefn). Notaðu alltaf sömu orð til að útskýra hvað er að gerast "Núna förum við á koppinn áður en við förum út að leika". Ef barnið sýnir áhuga, taktu bleyjuna af á daginn í stuttum skorpum. 5. Búðu til jákvæða reynslu Hrósaðu barninu þegar það situr á koppnum, sama hvort það gerir eitthvað eða ekki. Ekki refsa eða gera mikið úr slysum, þau eru hluti af ferlinu. Ef barnið er tregt, haltu áfram að nota jákvæða styrkingu, t.d. bók, límmiða eða bara hrós. 6. Bleyjulaus tími Þegar barnið er tilbúið, prófaðu að hafa það án bleyju í smá tíma á daginn. Hafðu koppinn aðgengilegan og minntu barnið á að nota hann. Ef slys verða, taktu þeim rólega og segðu "Næst skaltu segja mér þegar þú þarft að fara á koppinn/klósettið." Hvað ef barnið er ekki tilbúið? Sum börn eru einfaldlega ekki tilbúin, og það er í lagi. Ef barnið mótmælir mjög eða sýnir engan áhuga, bíddu og prófaðu aftur síðar. Ef barnið hefur náð góðum tökum en síðan fer aftur í bleyjuhegðun, taktu pásu og byrjaðu rólega aftur. Sum börn ganga í gegnum hræðslustig við að gera stykkin sín í koppinn – þá er gott að bjóða upp á bækur, syngja lag eða hafa leikföng nálægt. Með þessari skref-fyrir-skref nálgun verður koppaþjálfunin rólegri og aðlögun að nýjum venjum verður eðlilegri fyrir barnið. Næstu skref... Þegar barnið er farið að láta vita áður en það lætur vaða og er byrjað að gera stykkin sín nokkuð reglulega í koppinn/klósettið á bleyjulausum tíma, þá er það tilbúið í prófa að vera í venjulegum nærbuxum eða buxum heima. Börn halda oft að þau séu í bleyju þegar þau skynja að þau séu í einhverju að neðan og láta ekkert endilega vita þó þau séu orðin vön að láta vita á bleyjulausum tíma. Því er mikilvægt að byrja á þessu skrefi í öruggu umhverfi. Flest börn verða mjög hissa þegar þau pissa á sig og verða pissublaut og átta sig fljótlega á því að þau séu ekki í bleyju og þurfi líka að láta vita í þessu tilfelli.  Nú fyrst er tímabært að huga að þjálfunarnærbuxur eða æfingarnærbuxum. Við viljum ekki að börnin tengi þjálfunarnærbuxurnar við bleyju. Þær eiga bara að grípa slys og því er mikilvægt að börnin séu komin visst langt í þessu ferli áður en þjálfunarnærbuxurnar eru notaðar. Ekki nema þeim finnist mjög óþægilegt að finna fyrir vætunni og láti vita strax þegar þau hafa pissað.👉 Þjálfunarnærbuxur sem Cocobutts býður upp á Þá gæti gengið að nota þjálfunarnærbuxur snemma í ferlinu. Gott er að miða við að nota þjálfunarnærbuxur þegar þið viljið vernda fötin: eins og þegar er farið í bíltúra, út að leika og slíkt. Ef barnið er að pissa í þjálfunarnærbuxurnar og er ekki að láta vita að þá er mikilvægt að bakka og nota venjulegar nærbuxur eða óvatnsheldar þjálfunarnærbuxur svo þið getið gripið inn í þegar þið sjáið að það hefur orðið slys.  Gerðu ráð fyrir óvæntum slysum Slys gerast og því er mikilvægt að þið séuð viðbúin. Hafið auka föt og annað við höndina, sérstaklega þegar þið eruð ekki heima. Ekki láta hugfallast ef það verða slys, því það er eðlilegur og mikilvægur hluti af ferlinu.   Koppaþjálfun tekur tíma og þolinmæði, en með réttri nálgun og hugarfari getið þið saman náð árangri!   Viltu bæta einhverju við eða með einhverjar spurningar? Skildu eftir komment! Góða þjálfun!  
3 daga koppaþjálfun

3 daga koppaþjálfun fyrir 2+ ára

Er kominn tími á að fara að koppaþjálfa barnið þitt en þú ert ekki alveg viss um hvernig á að fara að eða hvort að barnið þitt sé tilbúið? Þá ertu á réttum stað! Ég veit þér gæti fundist þetta langt blogg en þetta er krefjandi, mikilvægt en líka skemmtilegt verkefni og við viljum veita þér allar upplýsingar og möguleg bjargráð sem gætu hjálpað ykkar ferli! Fáðu þér nú einn kaffibolla og sökktu þér í þetta verkefni okkur og lestu vel og vandlega. Við erum með þér í þessu!Mundu að öll börn eru misjöfn... ... og það er hægt að kenna börnum á kopp á ýmsan hátt. Við hjá Cocobutts mælum með EC(Elimination Communication) sem gengur útá það að lesa merki barnsins og að skapa sambönd á milli orða og þarfa. Þetta blogg er þó ekki alfarið um EC þar sem það eru klárlega heil fræði útaf fyrir sig. En hér höfum við blandað saman ráðum úr EC og hefðbundinni koppaþjálfun! Hvernig veistu að barnið þitt er tilbúið fyrir koppaþjálfun?Áður en þú byrjar á koppaþjálfun skaltu ganga úr skugga um að barnið þitt sé tilbúið í þetta skref. Flest börn eru tilbúin á aldrinum 18 mánaða til 3 ára, en hvert barn er misjafnt. Leitaðu að merkjum um að barnið sé tilbúið, eins og að sýna áhuga á baðherberginu eða eru þurr í lengri tíma. Einnig er sterkt merki þegar barnið þitt streytir mikið á móti á meðan það er verið að skipta á því. Fleiri merki: Bleyjan helst þurr í 2 tíma í einu Bleyjan er þurr eftir lúr Sýnir óþægindi þegar það er með blauta bleyju Felur sig til að pissa eða kúka Pissar sjaldnar en meira í einu Getur dregið niður og hysjað upp buxurnar sjálft Getur setið kyrrt í 2-5 mínútur Skilur og fylgir einföldum leiðbeiningum Börn þurfa ekki alltaf að vera tilbúin. Oftast nægir að þið sem foreldrar séuð tilbúin að taka þetta skref ef barnið þitt er heilbrigt og ekki með nein frávik sem tengjast þroska þess. Þá þarftu bara að ákveða hvenær þú ætlar að tækla þetta verkefni og gefa þér þrjá heila daga í koppaþjálfun og guggna ekki á verkefninu.  Mundu að börn læra best með því að fylgjast með! Við mælum með að taka börnin snemma með inná  klósettið þegar við förum sjálf. Þannig læra þau að þetta sé hluti af okkar eðlilega lífi og að allir nota klósettið! Ef þau hafa engan áhuga á þessu af fyrra bragði þá notaru jákvæða hvatningu, talar um klósettið, piss og kúk á jákvæðu nótunum í aðdraganda þjálfunar og lætur það vita að nú sé bleyjutímabilið að taka enda og barnið sé að fara að takast á við nýtt og spennandi verkefni sem er að læra að nota klósettið eins og mamma og pabbi eða stóru krakkarnir. Hvað þarf? Það sem þú þarft er koppur (helst í öllum baðherbergjum ef það eru nokkur á heimilinu) og/eða klósettseta og kollur, og góðar þjálfunarnærbuxur. Við hvetjum þig til þess að venja barnið strax á klósettið svo þú sleppir við að venja barnið af kopp seinna meir. Einnig er mjög gott að eiga blautpokar með tveimur hólfum svo þú getir geymt hrein aukaföt og pissublaut föt í eina og sama pokanum sem er bæði vatnsheldur og heldur lykt í skefjum. Einnig þarftu þolinmæði og hugarfar sem er litað af jákvæðni og stuðning. Við mælum eindregið með þjálfunarpakkanum okkar! Búðu til jákvæða upplifun Gerðu koppaþjálfun að jákvæðri upplifun fyrir barnið þitt. Búðu til þægilegt og aðlaðandi rými á baðherberginu og hrósaðu barninu þínu fyrir viðleitni þeirra. Notaðu jákvæða styrkingu, helst í formi orða, til þess að hvetja barnið þitt til að nota klósettið. Þegar barninu tekst svo að gera stykkin sín í klósettið í fyrsta skipti skiptir máli að hrósa því vel og gera því ljóst að það stóð sig vel. Þá er líklegra að barnið leitist við að endurtaka leikinn þegar því er næst mál.  Það er mjög mikilvægt að skamma ekki barnið ef það verður slys. Það á ekki að skammast sín fyrir það að vera að læra. Því jákvæðari sem upplifunin er því líklegra er að barnið vilji halda þessu ferli áfram. Í stífri þriggja daga þjálfun þá skiptir máli að þú sýnir barninu að nú er bleyjutímabilið búið. Við hvetjum ykkur til að pakka þeim í kassa og setja hann út og láta barnið vita að eitthvað annað barn sem þarf bleyjur ætli núna að fá bleyjurnar og það verði ekki lengur bleyjur í boði nema fyrir háttinn. Þannig veit barnið að það er ekki í boði að fara til baka. Nokkur atriði til að hafa í huga í stífri koppaþjálfun 1. Ekkert sjónvarp eða iPad- Börn breytast í litla uppvakninga þegar þau horfa. Þau slökkva á heilanum og kveikja bara á slökunartakkanum. Þá verða langoftast slys. Við mælum því með að sleppa glápi ef þú ert í stífri koppaþjálfun. 2. Ekki fara út fyrr en á degi tvö- Ástæðan fyrir þessu er einfaldlega að þú vilt hafa koppinn eða klósettið sem næst barninu þínu fyrsta daginn í þjálfun annars er eiginlega borðliggjandi að barnið pissi á sig. Hér gera þjálfunarnærbuxur ekkert gagn því barnið mun nota það sem bleyju ef það er sett í slíkar þegar það hefur ekki náð grunntökunum og það er ekki tilgangur þjálfunarnærbuxna. Samræmi er lykilatriði Samræmi er lykilatriði þegar kemur að koppaþjálfun. Haltu þig við rútínu og farðu með barnið þitt á koppinn, en ekki þvinga það. Það er mikilvægt að vera þolinmóður og skilningsríkur í gegnum ferlið. Mikilvægt er að fylgjast með atferli barnsins allan tímann og hafa augun á því á öllum vökutímum. Ef þú ert í þriggja daga koppaþjálfun þá er ekki í boði fyrir þig að fara í símann eða taka þér pásu því þá er mjög líklegt að þú náir ekki að grípa barnið þegar það er að pissa. Þjálfunin snýst um að taka eftir því að barnið þarf að pissa og koma því á klósettið áður en það pissar á gólfið eða í buxurnar. Á þessu stigi mælum við með að barnið sé bert að neðan heimafyrir eða þá í venjulegum nærbuxum. Það er mikilvægur partur af ferlinu að barnið sjái hvert pissið og kúkurinn fer ef barnið fer ekki á klósettið. Þeim bregður oft í fyrstu og þá er mikilvægt að sýna skilning og útskýra fyrir barninu að nú eigi pissið og/eða kúkurinn heima í klósettinu, ekki í nærbuxunum eða á gólfinu. Svo hjálpist þið að að þrífa þetta (eða þú og barnið horfir á) og endurtakið leikinn!  Í stífri þriggja daga þjálfun þá er líka mjög sterkur leikur að láta barnið drekka mikinn vökva á meðan þjálfuninni stendur. Þá hámarkaru möguleikana á sem flestum klósettferðum og þar með lærdómstímum. Þú hefur bara eitt tækifæri til að grípa barnið þitt þegar því er mál í hverjum „pissuglugga“. Ef þú sofnar á verðinum og barnið pissar á meðan þá er sá gluggi farinn og þú getur lítið gert en að bíða eftir næsta lærdómstækifæri fyrir barnið.Það er mikilvægt að þú talir við barnið í boðhætti þegar þú séð að barninu er mál. Ef þú spyrð barnið hvað það þurfi að pissa þá eru 99% líkur á því að það svari neitandi þó það sé á iði og þurfi að pissa. Mundu að barnið er að læra nýja lífskúnst og þjálfa nýtt skynfæri. Það er vant því að láta vaða, hvar sem er og hvenær sem er. Það mun gerast að það gleymi sér, sérstaklega þegar það er í dundi. Það er þitt verkefni að einbeita þér að verkefninu, ekki barnins. Þú átt að grípa barnið þegar því er mál og segja „Ég sé að þú þarft að pissa, förum á klósettið núna“.  Í hvert skipti sem barninu tekst að pissa í kopp eða klósett er mikilvægt að þú hrósir því vel. Sum börn þurfa einhverja meiri umbun eins og stimpil, límmiða eða jafnvel nammi. Láttu það eftir þér. Verðlaunin þurfa að vera nógu hvetjandi svo barnið nenni þessu.  Þið eigið mjög líklega eftir að lenda í því að barnið taki bræðiskast á einhverjum tímapunkti. Þarna reynir á hvernig þið setjið barninu ykkar mörk og hefur miklu meira með ykkur að gera sem foreldra heldur en barnið og koppaþjálfunina. Það er mjög mikilvægt að þið standið við það að bleyjutímabilið sé búið og það er ekki í boði að fá bleyju, sama hvað barnið lætur illum látum. Fyrir þessi yngri, hafðu augun opin gagnvart merkjum og búðu til tengingar  Það er öflugt að hjálpa barninu að tengja tilfinningar við orð, þannig að þau geta  notað orðin seinna meir til þess að láta vita að þau þurfa að fara á klósettið. Sem dæmi er hægt að halda barninu yfir klósettinu (eða hafa það á koppnum) og nota orðið "Kúka!" þegar það kúkar. Hvort sem barnið er að gera stykkin sín eða er búið að því að þá er mikilvægt að hafa orð á því og segja „pissa“ eða „kúka“ og taka það upp, fara með það á koppinn eða á klósettið og skeina því á koppnum/eða klósettinu. Þegar barnið er farið að tengja orðin við athafnirnar og segja þau upphátt er hægt að minna það á að láta vita áður en það lætur vaða þegar það verða slys. Hér er dæmi um þriggja daga prógram: Dagur 1 Takið næturbleyjuna af barninu Setjið barnið á koppinn áður en þið setjið það í þjálfunarnærbuxurnar Minnið barnið á 30-40mín fresti að setjast á koppinn Látið það vita af umbunarkerfinu/límmiðunum Útbúið afþreyingabox sem dreifir huganum og heldur þeim í slökunarástandi. Búist við slatta af slysum á fyrsta degi Dagur 2 Sama rútína og dagur 1 Spurðu ‘hvar er koppurinn þinn?’ fáðu barnið til að sýna þér og hvettu það til sjálfstæðis Vertu viss um að barnið drekki mikið af vökva. Heilbrigð blaðra og þarmar eru grundvallaratriði. Ekki gleyma að nota hvatningu til að ná barninu á koppinn/klósettið Notaðu einfalt en áhrifaríkt tungumál þegar þú ert að verðlauna og hrósa barninu Dagur 3 Sama rútína og síðustu 2 daga Haltu áfram að spyrja hvar koppurinn/klósettið er. Það er frábær áminning. Nýjungin að sitja á koppnum/klósettinu gæti orðið þreytandi svo komdu með afþreyingaboxið. Þar sem þau litlu eru oft utan við sig er gott að nota hvatningu aðeins oftar þennan daginn.  Þennan daginn er allt í góðu að fara aðeins á flakkið en helst innanbæjar. Munið eftir koppnum og auka fötum og verðlaunum. Alveg eins og heima, munið að hvetja á 20 mín fresti og haldið verðlaunum og hvatningum reglulegum Næstu skref... Þegar barnið er farið að láta vita áður en það lætur vaða og er byrjað að gera stykkin sín nokkuð reglulega í koppinn/klósettið á bleyjulausum tíma, þá er það tilbúið í prófa að vera í venjulegum nærbuxum eða buxum heima. Börn halda oft að þau séu í bleyju þegar þau skynja að þau séu í einhverju að neðan og láta ekkert endilega vita þó þau séu orðin vön að láta vita á bleyjulausum tíma. Því er mikilvægt að byrja á þessu skrefi í öruggu umhverfi. Flest börn verða mjög hissa þegar þau pissa á sig og verða pissublaut og átta sig fljótlega á því að þau séu ekki í bleyju og þurfi líka að láta vita í þessu tilfelli.  Nú fyrst er tímabært að huga að þjálfunarnærbuxur eða æfingarnærbuxum. Við viljum ekki að börnin tengi þjálfunarnærbuxurnar við bleyju. Þær eiga bara að grípa slys og því er mikilvægt að börnin séu komin visst langt í þessu ferli áður en þjálfunarnærbuxurnar eru notaðar. Ekki nema þeim finnist mjög óþægilegt að finna fyrir vætunni og láti vita strax þegar þau hafa pissað. 👉 Þjálfunarnærbuxur sem Cocobutts býður upp á Þá gæti gengið að nota þjálfunarnærbuxur snemma í ferlinu. Gott er að miða við að nota þjálfunarnærbuxur þegar þið viljið vernda fötin: eins og þegar er farið í bíltúra, út að leika og slíkt. Ef barnið er að pissa í þjálfunarnærbuxurnar og er ekki að láta vita að þá er mikilvægt að bakka og nota venjulegar nærbuxur eða óvatnsheldar þjálfunarnærbuxur svo þið getið gripið inn í þegar þið sjáið að það hefur orðið slys.  Gerðu ráð fyrir óvæntum slysum Slys gerast og því er mikilvægt að þið séuð viðbúin. Hafið auka föt og annað við höndina, sérstaklega þegar þið eruð ekki heima. Ekki láta hugfallast ef það verða slys, því það er eðlilegur og mikilvægur hluti af ferlinu.   Koppaþjálfun tekur tíma og þolinmæði, en með réttri nálgun og hugarfari getið þið saman náð árangri!   Viltu bæta einhverju við eða með einhverjar spurningar? Skildu eftir komment! Góða þjálfun!
Þvottur þjálfunarnærbuxur

Leiðbeiningar um þvott á þjálfunarnærbuxum fyrir börn í koppaþjálfun

Leiðbeiningar um þvott á þjálfunarnærbuxum fyrir börn í koppaþjálfun Koppaþjálfun er mikilvægur áfangi í lífi barnsins, og þjálfunarnærbuxur eru frábær hjálp á þessari vegferð. Þær gefa barninu tilfinningu fyrir því að vera í venjulegum nærbuxum, en með smá auka vörn fyrir lítil slys. Eins og með margnota bleyjur er rétt umhirða lykilatriði til að tryggja að þjálfunarnærbuxurnar haldi virkni sinni og endist lengi. Hér eru nokkur ráð um hvernig á að þvo þjálfunarnærbuxur og sjá til þess að þær séu alltaf tilbúnar fyrir daginn. 1. Skolaðu eftir notkunEf slys eiga sér stað skaltu skola þjálfunarnærbuxurnar strax eftir notkun. Þetta hjálpar til við að fjarlægja umfram þvag og kemur í veg fyrir að blettir myndist. Skolaðu buxurnar með köldu vatni áður en þær fara í þvottavélina. 2. Þvottur við rétt hitastigÞjálfunarnærbuxur má þvo í þvottavél við 40-60°C, allt eftir magni af óhreinindum. Þvottur við 60°C getur verið betri ef þú vilt tryggja að allar bakteríur séu fjarlægðar, sérstaklega ef kúkaslys hafa átt sér stað. Mikilvægt er að nota milt þvottaefni sem er laust við ilmefni og hörð efni, þar sem sterk efni geta skaðað bæði efni og húð barnsins. Forðastu einnig mýkingarefni, þar sem þau geta minnkað rakadrægni buxnanna og dregið úr virkni þeirra. 3. Ekki ofþvo eða oftar en nauðsyn krefurÞjálfunarnærbuxur þurfa ekki að vera þvegnar eftir hvert einasta skipti nema slys hafi átt sér stað. Ef barnið nær að nota þær án slysa skaltu einfaldlega þvo þær eftir nokkra daga eða samkvæmt þinni þvottarútínu. Ofþvottur getur dregið úr endingartíma buxnanna. 4. ÞurrkunÞegar kemur að þurrkun er best að láta þjálfunarnærbuxurnar þorna á snúru. Að nota þurrkara á háum hita getur dregið úr virkni þeirra, sérstaklega ef þær eru með vatnsheldu lagi. Ef þú þarft að nota þurrkara, skaltu velja lága hitastillingu. 5. Varðveittu buxurnar velTil að tryggja að þjálfunarnærbuxurnar haldist í góðu ástandi er mikilvægt að geyma þær á hreinum og þurrum stað milli notkunar. Þetta kemur í veg fyrir að þær verði fyrir raka eða myglu og þú getur selt þær þegar þær hafa lokið tilgangi sínum hjá þinni fjölskyldu. 6. Fjarlægðu bletti með náttúrulegum leiðumÞó blettir séu oft óumflýjanlegir í koppaþjálfun, er hægt að draga úr þeim með náttúrulegum leiðum. Ef blettir eru þrálátir geturðu notað matarsóda eða edik sem blettaeyðir. Forðastu sterka efnafræðilega blettaeyða þar sem þeir geta skaðað efnið og verið óhollir fyrir barnið. Sólin gerir líka kraftaverk og fjarlægir oft ótrúlegustu bletti! NiðurstaðaRétt umhirða á þjálfunarnærbuxum getur lengt líftíma þeirra og tryggt að þær haldi virkni sinni meðan á koppaþjálfun stendur. Með því að fylgja þessum einföldu ráðum geturðu haldið buxunum í topp standi og hjálpað barninu þínu að ná góðum árangri í koppaþjálfun án þess að fórna þægindum eða hreinlæti.