Það er eðlilegt að finnast taubleyjulífið vera mikið í byrjun, en mundu að þú þarft ekki að kunna allt strax. Smám saman verður þetta einfaldara, og við erum hér til að styðja þig. Þetta blogg er fyrir öll sem vilja fara af stað en þurfa aðstoð við sín fyrstu skref🤝
1. Fyrst þarftu að kynnast kerfunum sem eru í boði. Byrjaðu á því að lesa þetta blogg um mismunandi kerfi taubleyja og sjáðu hvort að eitt kerfi talar sérstaklega til þín. Almennt mælum við með að prófa flest kerfi áður en þú kaupir allt safnið þitt því annars áttu í hættu með að kaupa of mikið af því sem hentar ykkur síðan kannski ekki🤷🏻♀️ Með smá rannsóknum munt þú finna það sem hentar þér og fjölskyldunni best.
2. Þetta hefst síðan allt saman á fyrstu bleyjunum. Um leið og þið eruð komin með þær í hendurnar þá eru þið farin af stað. Við mælum með að byrja á nógu mörgum bleyjum til að dekka einn dag í taubleyjum, eða a.m.k. tvo hálfa daga. Það eru yfirleitt 5-6 taubleyjur og blautpoki. Gott er að prófa einnota eða fjölnota renninga líka (e. disposable liners) sem grípa kúk og gerir þrifin töluvert einfaldari.
3. Ef þú vilt ekki kaupa tilbúna pakka þá er um að gera að útvega sér þær bleyjur sem þér líst vel á, notaðar eða nýjar. Oft er hægt að finna vel með farnar notaðar bleyjur í Barnaloppunni og á Taubleiutorginu á Facebook. Við mælum ekki með að sanka að sér allskonar taubleyjum af mismunandi tegundum og taubleyjumerkjum því það getur bara ruglað þig í rýminu og gert þetta töluvert flóknara en þetta þarf að vera. Ef þú vilt prófa allar gerðirnar, reyndu þá bara að kaupa eina af hverri gerð til að prófa og svo kaupirðu meira að því sem þú fílar. Einnig er gott að kynna sér hvað þarf að hafa í huga þegar keyptar eru notaðar bleyjur, þú getur lesið þér betur til um það hér.
Nýburableyjuleigan okkar er svo alveg tilvalin til að prófa taubleyjur fyrstu 1-2 mánuði barnsins en þar færðu í raun fullt safn af taubleyjum og alla aukahluti sem þú þarft til að nota eingöngu taubleyjur fyrstu mánuðina. Þar sem nýburar vaxa svo hratt í byrjun mælum helst alltaf með því að kaupa ekki nýburableyjur heldur frekar fá þær lánaðar eða leigja þær.
4. Ef þú hefur tök á því að þrífa annanhvern dag þá mælum við með að eiga 16-20 bleyjur. Þú getur tínt í safnið þitt smátt og smátt eða keypt allar bleyjur í einu sem þér líst vel á.🧸
5. Þegar þið eruð komin með bleyjurnar í hendurnar skulið þið lesa þetta blogg hér um hvernig á að preppa þær og nokkrar þumalputtareglur varðandi tau. Einnig skaltu horfa á þetta myndband um hvernig skal setja taubleyju á barn og síðan kanski lesa þetta blogg hér um tau og kúk.💩
6. Þegar þið eruð búin að lesa hvernig hvernig á að preppa þær og þekkið þumalputtareglurnar skulið þið einfaldlega fara af stað. Núna er að kynnast taubleyjulífinu sjálfu og tími til að spá í þvottarútínu.🧺 Hér er okkar tillaga að einfaldri þvottarútínu til viðmiðunar🌸 Góð þvottarútína er mjög mikilvæg því taubleyjan er næst húð barnsins og því skiptir miklu máli að bleyjurnar séu hreinar.✨ Einnig er gott að hafa í huga að þvottaefni og önnur aukaefni geta safnast fyrir í þvottavélinni og því gott að huga að hreinlæti þvottavélarinnar líka. Hér er tillaga að því hvernig þú djúphreinar þvottavélina.
7. Farðu af stað og hafðu í huga að í byrjun gertur þetta verið svolítið brösulegt. Verið opin gagnvart leka og almennum ruglingi. Besta ráðið hér er að hlæja bara og reyna betur. Áður en þú veist af ertu komin með skothelda rútínu sem flæðir vel með heimilislífinu þínu. Hér er tékklisti fyrir leka💦
8. Byrjaðu á því að nota bara þau innlegg sem fylgja með🤍 Kanski eru þau nóg- kanski þarftu meira eða eitthvað öðruvísi. Það er ómögulegt að vita hvað þú þarft án þess að prófa bleyjurnar fyrst. Sum börn eru ofurpissarar og þurfa extra rakadrægni á meðan önnur eru bara góð með það sem fylgir. Hér er blogg um mismunandi innlegg.
9. Þegar þú ert 100% viss um að tau er eitthvað sem þú vilt halda áfram með þá mælum við með því að byrja að tína að sér aukahluti sem gerir tauið svo miklu miklu miklu auðveldara og þægilegra. Hér er okkar tjékklisti✔️
☑️ Extra stór deluxe blautpoki til að eiga heima fyrir óhreinu taubleyjurnar
☑️ Úrval blautpoka með aðskildum hólfum til þess að hafa í skiptitösku
☑️ Hríspappír til þess að setja í bleyjuna til þess að grípa kúk eða til þess að passa upp á bleyjunar ef þú þarft að nota zink krem
☑️ Fjölnota þurrkur - hvers vegna ekki bara að taka þetta alla leið?
10. Ef þú ert með einhverjar spurningar sem við höfum ekki svarað hér þá máttu endilega kíkja á þetta blogg um þær algengustu spurningar sem við fáum á borðið til okkar og sjá hvort að þú finnur ekki lausnina þar🪄 Ef ekki þá skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur á instagram, spjallinu, Facebook eða einfaldlega hringja í okkur! Einnig mælum við með því að skrá sig á "Taubleiutjatt" eða í Cocobutts fjölskylduna - lokaða facebookhópinn okkar fyrir stuðning og hvatningu!
11. Þegar þið eruð búin að tækla daginn þá gæti verið góð hugmynd að spá í næturvaktinni líka✨💤 Hér finnur þú gott blogg um næturbleyjur. Ef þú ert með ofurpissara mælum við eindregið með ullarbuxum yfir næturbleyjur.
Þetta eru ráðin og skrefin sem munu koma þér af stað. Allar aðrar upplýsingar eru í raun aukatriði sem þú þarft ekki að spá í nema að þú raunverulega vilt það! Mundu að taubleyjulífið er ferðalag sem vert er að taka fyrir þig, fjölskylduna og umhverfið allt. Gangi þér vel og ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!
Við erum saman í þessu💖 Láttu vita hvernig gengur, við elskum að heyra frá þér og fjölskyldunni þinni!