Við erum svo spennt að deila með ykkur að við erum að flytja lagerinn okkar yfir í Cornelli Kids í Kópavogi! 🏡✨
Þetta markar sérstök tímamót fyrir okkur – því nú höfum við lokið heilum hring í okkar rekstrarsögu!
Þegar Cocobutts byrjaði fyrir rúmum fjórum árum, þá hýstum við lagerinn okkar hjá Amy í Tropic. Þar var bæði hægt að sækja pantanir og skoða vörur. Síðan höfum við verið á ýmsum stöðum með vaxandi rekstur – og nú snúum við aftur að persónulegri nálgun sem okkur þykir svo vænt um: hlýju, nálægð og tengsl við ykkur. 💛
Frá og með 2. maí verður hægt að:
📍 Sækja pantanir og versla vörur frá Cocobutts í Cornelli Kids, Hamraborg 7 (bakhús), 200 Kópavogi.
🕙 Opnunartímar:
- Virka daga kl. 10:00–17:00
- Laugardaga kl. 11:00–15:00
Ráðgjöf í boði!
Elín verður á staðnum í Cornelli Kids alla föstudaga kl. 14:00–15:30, tilbúin til að veita persónulega ráðgjöf og hjálpa þér að finna bestu lausnirnar fyrir fjölskylduna þína. 🌿
Við erum líka að undirbúa spennandi ný námskeið og fræðsluverkefni, þar sem við munum dýpka fókus okkar á stuðning, fræðslu og valdeflingu foreldra – nýr og dásamlegur kafli er að hefjast! ✨
Rýmingarsala í fullum gangi!
Í tilefni flutningsins höfum við sett upp OUTLET með föstum rýmingarverðum og merkt allar vörur með rauðum borða merktum „RÝMINGASALA“.
Það er um að gera að næla sér í fallegar vörur áður en birgðir klárast því þær koma ekki aftur.
👉 Kíktu í rýminguna HÉR
Við hlökkum til að sjá ykkur – og taka næstu skref saman! 💛