Poppets baby

Lífræn blautþurrkubox fyrir fjölnota þurrkur - Stærðir

Vörulýsing

Lífrænt og loftþétt blautþurrkubox sem er fullkomið til að geyma fjölnota þurrkur. Lokið er með tvöföldum lás sem gerir það 100% vatnshelt. 

Lokið er hannað þannig að þú getur leyft þurrkunum þínum að kólna á öruggan hátt í boxinu með lokinu og það er meira að segja í lagi að setja það í örbylgjuofn til að hita upp þurrkurnar! Svo nýtast þau í svo margt annað en að geyma fjölnota þurrkur þegar það tímabil er liðið hjá.

Það er einstaklega auðvelt að þrífa boxið þar sem það má fara í uppþvottavélina. Það má einnig fara í frystinn. 

Stærðir

Grande 19,5 x 19,5 x hæð 9,3 cm - 1900ml - Rúmar 20stk 20x20cm þurrkur

Poco: 20 x 12 x hæð 7cm - 900 ml - rúmar um 10stk 20x20 þurrkur brotnar í tvennt

Efni

100% lífrænt bio-plast.

Þvottur og umhirða

Má fara í uppþvottavél, þolir allt að 100gráðu hita, má setja í örbylgjuofn, auðvelt að þrífa.

Um merkið 

Poppets baby er lítið fjölskyldufyrirtæki frá Yorkshire í Bretlandi sem leggur áherslu á eiturefnalausar húðvörur og aukahluti sem fríska upp á taulífið! Upphaf Poppets baby hófst með handgerðu þurrkumolunum sem notið hafa gríðarlegra vinsælda í Bretlandi. Í dag framleiðir Poppets einnig til að mynda barnapúður, vasableyjur, þurrkur og þvottavörur fyrir ull. 

4.990 kr

Hægt að sækja Cornelli Kids

Usually ready in 2-4 days

Áætlaður afhendingartími milli apríl 09 og apríl 11.

Deila

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.