2 vörur
2 vörur
Flokka eftir:


Frá 14.900 kr
Verð per eininguVið bjóðum þér að prófa taubleyjur á einfaldan hátt með nýburableyjupakkanum – skref í átt að sjálfbærni og vellíðan fyrir barnið.
Nýburableyjuleigan okkar er hagkvæm og umhverfisvæn leið til að nota taubleyjur frá fyrstu dögum barnsins.
Nýburableyjupakkarnir okkar eru í boði um allt land, og þú greiðir aðeins sendingarkostnað aukalega. Við sendum þér leiðbeiningar varðandi endursendingu með afhendingu pakkans og áminningu þegar líður að skilum. Þú færð einnig rafrænan leiðbeiningarbækling með hagnýtum upplýsingum við bókun.
Pakkarnir eru alltaf nýlegir og í topp standi. Við endurnýjum skeljar, innlegg og aukahluti sem sýna áberandi slit. Þannig tryggjum við að pakkarnir séu alltaf í góðu ástandi til að tryggja eins góða reynslu og best verður á kosið.
0 kr
Verð per eininguTaubleyjulánspakkinn er fullkominn fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í taui. Þú færð tækifæri til að prófa mismunandi kerfi og vörumerki sem Cocobutts býður upp á áður en þú fjárfestir í taubleyjum. Pakkinn er gjaldfrjáls, og þú greiðir aðeins fyrir sendingakostnað.
Þegar þú leigir pakkann færðu rafrænan leiðbeiningabækling í tölvupósti, QR kóða á pakkanum og tékklista yfir innihaldið. Pakkinn er í boði um allt land, en sendingarkostnaður er greiddur af leigutaka.
Hvað er í pakkanum?
One Size taubleyjur
- AIO frá Elskbar + bambus innleggjatunga og búster
-
Vasableyjur:
- 2x Alva Baby með AWJ innra lagi + 4ra laga bambusblandað innlegg
- 2x Little Lamb með microflís innra lagi + 2x 3ja laga bambus innlegg
- Fitted bleyja frá Alva Baby
- Ai2 „Cover all“ skel frá Elskbar
Innlegg
- 3ja laga bambus innlegg frá Alva Baby
- Trifold úr hreinum bambus frá Little Lamb
- Hemp búster frá Little Lamb
- Trifold frá Elskbar
- Innleggjasett frá Elskbar
Aukahlutir
-
Blautpokar:
- Lítill með tveimur hólfum frá Little Lamb
- Stór með tveimur hólfum frá Little Lamb
- 5x fjölnota bambusþurrkur frá Little Lamb
- 5x fjölnota bambus terry þurrkur frá Poppets Baby
Hvernig virkar þetta?
- Veldu upphafsdagssetningu á dagatalinu á síðunni. Rauðar dagssetningar þýða að pakkinn er frátekinn.
- Dagatalið tekur sjálfkrafa frá næstu 14 daga.
- Þegar þú hefur gengið frá pöntun færðu leiðbeiningar um notkun og meðhöndlun taubleyjanna í tölvupósti.
Verð og skilmálar
- Pakkinn er gjaldfrjáls, en sendingarkostnaður er greiddur af leigutaka.
- Með bókun samþykkir þú leiguskilmála Cocobutts.
Nýttu þetta einstaka tækifæri til að prófa fjölnota taubleyjur og læra um hvernig þær henta fyrir fjölskylduna þína!