Cocobutts

Gjafabréf

Þekkirðu einhvern vill leggja sitt af mörkum til umhverfisins í foreldrahlutverkinu? Gjafabréf Cocobutts er þá tilvalin gjöf og gildir í netverslun, verslun og taubleyjuleigu og hentar einstaklega vel fyrir sængurlegugjafir, barnasturtur, skírnargjafir og aðrar tækifærisgjafir sem tengjast ungabörnum.

Veldu þína upphæð og gefðu gjöf sem styður við eiturefnalaust og umhverfisvænt upphaf. 

Frí heimsending í bréfpósti fylgir öllum áþreifanlegum gjafabréfum! Láttu okkur vita í skilaboðum með pöntuninni hvort við skrifum á gjafabréfið fyrir þig!

5.000 kr

200 stafir max

Áætlaður afhendingartími milli janúar 25 og janúar 27.

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Gjafabréf

5.000 kr

5.000 kr

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.