Almennt
Kt. 5407210410
VSK númer 141839
Ljósheimum 10, 104 Reykjavík
info@cocobutts.is
- Taubleyjuleiga fyrir nýbura
- Taubleyjuleiga - Vasableyjur
- Taubleyjuleiga - Ai2 bleyjur
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Taubleyjuleigan fyrir nýbura er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Vefpóstur og/eða SMS er sent þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. Verslunin er lokuð alla rauða daga né annað sé tekið fram.
- Fjörðinn verslunarmiðstöð, 2. hæð. Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður, (Opið 10-18:00 alla virka daga og laugardaga frá kl 11- 17). Verð: 0 kr.
- Heimsending út um allt land með Íslandspósti eða Dropp. Vörur eru póstlagðar 1-3 dögum fyrir áætlaða afhendingu og jafnvel fyrr ef pakkinn skilast fyrr frá fyrri leigjanda. Afhending 1-3 virkir dagar. Verðið er breytilegt eftir verðskrá Póstsins og kemur fram við greiðslu.
Allar vörur eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest eða næsta virka dag ef greiðsla berst eftir klukkan 17:00. Þú getur fengið vörurnar sendar en ef þú kýst að sækja getur þú gert það án endurgjalds í verslun okkar, þitt er valið.
Kemur það upp að vara sé í útleigu eða geti ekki verið afhend á réttum tíma vegna einhverra ástæðna mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef afhendingardagssetning lendir á helgi eða á gulum eða rauðum degi áskiljum við okkur rétt til að seinka afhendingu eða póstlagningu til næsta virka dags.
Verð og greiðsla
- Leiguverðið á One size taubleyjupökkum er 499 kr m. vsk á dag og leigutímabilið er 14 heilir dagar.
- Leigutaki greiðir fyrir leiguna fyrirfram og er leigutímabilið 14 heilir dagar.
- Ef leigutaki afbókar með minna en þriggja daga fyrirvara fæst leigan ekki endurgreidd.
- Við sendum leiðbeiningar um hvernig skal meðhöndla pakkann þegar pöntunin þegar þú sækir eða þegar við sendum pakkann til þín.
Nýburaleigupakkar
- Leiguverðið á nýburableyjupakka er 690 kr. m. vsk á dag og er leigutímabilið 30-45 heilir dagar.
- Leigutaki greiðir staðfestingargjald sem samsvarar vikuleigu við bókun þegar nýburapakkinn er tekinn á leigu. Staðfestingargjaldið fæst endurgreitt í formi inneignarnótu ef afbókað er með a.m.k viku daga fyrirvara.
- Ef leigutaki afbókar með minna en viku fyrirvara fæst staðfestingargjaldið ekki endurgreitt.
- Við afhendingu eða fyrir póstlagningu greiðir leigutaki eftirstöður eftir því hvað hann ákveður að hafa bleyjurnar lengi á leigu (minnst 30 dagar, mest 45 dagar). Ef pakkinn er sóttur í verslun greiðir leigutaki eftirstöðurnar á staðnum en ef um heimsendingu er að ræða verður pakkinn ekki afhendur fyrr en leigutaki hefur gert upp eftirstöðvarnar að fullu.
- Leigutímabilið hvorki lengist né styttist þó greiðslur dragist.
- Ef leigutaki hefur ekki greitt eftirstöðvarnar einni viku eftir að upphafsdagssetning hefst áskiljum við okkur rétt til að afbóka pöntunina og tilkynna pakkann lausan til leigu.
- Við sendum leiðbeiningar um hvernig skal meðhöndla pakkann eftir að lokagreiðsla hefur borist.
- Cocobutts ehf áskilur sér rétt til að endurgreiða ekki fyrir vasa- eða Ai2 leigupakkana séu þeir ekki sóttir á tilskyldum upphafsdagssetningum.
- Breytingar á upphafsdagssetningu bókunnar má framkvæma með a.m.k. þriggja daga fyrirvara í gegnum staðfestingarpóst sem leigutaki fékk sendan við bókun.
- Leigutíminn er alltaf tvær vikur og fást ónýttir dagar ekki endurgreiddir.
- Cocobutts ehf áskilur sér rétt til að rukka fyrir einnar viku leigu sé ekki hætt við bókum með a.m.k. einnar viku fyrirvara
- Breytingar á tímabili bókunnar má framkvæma með a.m.k. þriggja daga fyrirvara. Ef leigutaki vill stytta leigutímann og skila pakkanum fyrr skal hann hafa samband við okkur með tölvupósti info@cocobutts.is með a.m.k. þriggja daga fyrirvara.
- Eldri nýburaleigupakkar bera staðgreiðsluverð sem fæst ekki endurgreitt sé pakkanum skilað fyrr.
Gildistími samnings varir frá upphafsdegi leigu og þar til leigutaki skilar pakkanum.
-
Gengur úr skugga um að innihald taubleyjupakkanna sé heilt, hreint og tilbúið til notkunar áður en þeir fara í útlán til viðskiptavina.
- Gerir ástandsskoðun á taubleyjupökkum eftir þriðja hvern viðskiptavin.
- Að fara eins vel með varninginn og hann getur:
- Þrífur bleyjurnar samkvæmt þvottaleiðbeiningum leigusala eða eins og segir til um á þvottaleiðbeiningum á varningi og sér til þess að ganga frá taubleyjunum samkvæmt leiðbeiningum leigusala áður en þær eru settar í þvott.
- Skilar innihaldi pakkans hreinu og heilu og passar upp á að ekkert vanti í pakkann þegar honum er skilað.
- Cocobutts ehf ber ekki ábyrgð á bruna, roða, kláða eða öðrum heilsufarslegum kvillum sem kunna að myndast vegna ofnæmis eða lélegrar þvottarútínu.
- Cocobutts ehf mælist til að leigutaki þrífi bleyjurnar sjálfur áður en hann byrjar að nota þær þó þær kunni að vera hreinar við afhendingu.
- Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 60.000 kr. ef leigutaki skilar ekki taubleyjupakkum eins og þeir leggja sig og ekki tekst að ná sambandi við hann
- Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 3500 kr. per varning sem týnist, skemmist eða skilast í slæmu ástandi sem ekki má rekja til slits vegna almennrar notkunar.
- Leigusali áskilur sér rétt til þess að endurgreiða ekki þá daga sem leigutaki nýtir ekki taubleyjupakkana ef eitthvað af ofangreindu á við.
- Leigutaki ber ekki ábyrgð á sliti varningsins vegna almennrar notkunar.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi)