La Petite Ourse

AIO bleyjur með vasa og auka búster - OS

4.990 kr

Áætlaður afhendingartími milli nóvember 04 og nóvember 06.

Vörulýsing

Einstaklega rakadræg All-In-One taubleyja frá La Petit Ourse sem passar börnum frá 4,5-15kg. 

Þessi dásemd skartar öllu því sem gerir góða bleyju frábæra. Bleyjunni fylgir auka booster sem maður smellir í en einnig er hægt að setja auka innlegg í vasa sem er í bleyjunni. Bleyjan er með rakadrægt bambusinnlegg saumað inní. Upp við húð barnsins er silkimjúkt stay-dry efni.

Frekari upplýsingar

Tvöfaldur saumur sem kemur í veg fyrir leka meðfram lærum.
- Extra vasi fyrir auka rakadrægni (auka innlegg fylgir ekki, bara einn búster)
- Ísaumað innlegg er úr einu lagi af microfiber og þremur lögum bambus
- Hver bleyja kemur með búster sem er "stay-dry" úr einu lagi af microfiber og fjögur lög af bambus.
- Öflugt fjögurra- hæða stærðarkerfi

Eiginleikar


Efni

Bleyja
25% bambus, 75% polyester

Búster
45% bambus, 55% polyester

Rakadrægni bleyju

177ml

Rakadrægni bústers
185ml

Vottanir
CPSIA


Um merkið

 

    Við mælum með að þvo allar fjölnota nauðsynjavörur og aukahluti með PUL efni á 60° þó þvottaleiðbeiningar á þvottamiðum frá framleiðendum segi 30° eða 40°. Flestar, ef ekki allar fjölnota nauðsynjavörur þola 60° þvott.

    Athugið samt sérstaklega að framleiðendur geta fyrrað sig undan ábyrgð hafi þvottaleiðbeiningum frá framleiðanda ekki verið fylgt.

    Þumalputtareglur

    • Taubleyjur og innlegg má þvo á 60°
    • Innlegg má setja í þurrkara en skeljar ætti að hengja upp á snúru. 
    • Notið mild þvottaefni án ensíma.
    • Engin mýkingarefni.

    Geymsla notaðra bleyja

    Notaðar bleyjur skal geyma á baðherbergi eða í þvottahúsi í opnu íláti eða góðum geymslupokum sem lofta. Við mælum sterklega með Pail liner, en það er einnig í lagi að nota bala eða vask sem tryggir gott loftflæði. Pro tip: Gættu þess að geyma bleyjurnar þurrar – geymsla í vatni getur skemmt bleyjurnar og teygjurnar.

    Ef bleyja verður fyrir kúki, skaltu skola hana að kvöldi eða strax. Það er hins vegar ekki nauðsynlegt að skola bleyjur sem aðeins hafa verið pissað í – þær má geyma fram að þvottadegi.

    Þvottarútína

    Við mælum heilshugar með að nota þrjá aðskilda þvottahringi (nýtt prógramm í hvert skipti), því flestar vélar skipta ekki um vatn milli hringja innan sama prógramms, sem getur valdið því að þvotturinn verði ekki nægilega hreinn.

    Klassískur taubleyjuþvottur

    1. Fyrsti hringur: Kalt skol án þvottaefnis (Rinse + Spin).
    2. Annar hringur: Langur hringur á 60°C með þvottaefni (minnst 2 klst).
    3. Þriðji hringur: Kalt skol án þvottaefnis. 

    Ofnæmisstilling

    Ef þvottavélin þín er með ofnæmisstillingu sem þrífur við 60-63°C í 2,5-4 klst og skiptir um vatn á milli hringja, geturðu sleppt síðasta skolinu í lokin.

    Pro tip: Eftir þvott er gott að þreifa á bleyjunum og lykta af þeim. Ef þær lykta ekki af þvottaefni eða súru ætti allt að vera í lagi. Ef þvotturinn er ekki alveg rétt skolaður, getur verið gott að setja þær í annan „Rinse + Spin“.

    Þurrkun

    Við mælum með að þurrka bleyjurnar í lofti. Ef þú þarft að nota þurrkara skaltu nota lága hita stillingu fyrir innleggin. Pro tip: Settu aldrei skeljar eða vasar í þurrkara þar sem hitinn getur eyðilagt teygjurnar og ytra efnið.

    Sjá nánar um þvott á taubleyjum hér

    Afhending
    Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

    Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

    6 vikna reynslutími
    Við bjóðum upp á 6 vikna reynslutíma á öllum margnota bleyjum og aukahlutum fyrir nýja Cocobutts viðskiptavini sem eru að versla taubleyjur í fyrsta skipti. Ef þú ert ekki ánægð/ur með kaupin þín, þvoðu þá vörurnar og skilaðu þeim innan 6 vikna frá kaupum til að fá fulla endurgreiðslu í formi inneignarnótu eða 80% endurgreiðslu kjósir þú að fá endurgreitt inn á þann greiðslumáta sem þú upphaflega notaðir til að greiða fyrir vöruna.

    Skilmálar og skilyrði:

    • Sendingarkostnaður vegna skilanna er á þinn kostnað.
    • Allar vörur verða að vera keyptar á Cocobutts.is.
    • Skilastefna okkar er takmörkuð við ein (1) skil eða skipti frá hverju heimili.
    • Vinsamlegast hafðu samband við okkur innan fyrstu 6 viknanna eftir að þú fékkst vörurnar þínar afhentar til að senda inn beiðni um skil.
    • Allar vörur verða að vera í hreinu og nothæfu ástandi og mega ekki hafa verið soðnar, bleiktar eða illa meðfarnar. Við tökum ekki við Cocobutts vörum í lélegu ástandi.
    • Þessi reynslutími á ekki við um hreinlætisvörur, tíðavörur, koppaþjálfunarnærbuxur eða aðrar vörur sem ekki tengjast taubleyjum, sem og útsöluvörur.
    • Lestu meira

    Skil og skipti
    Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 30 daga. Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

    Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

    Ábyrgð
    Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
    Lestu meira

    Deila

    Customer Reviews

    Based on 8 reviews
    88%
    (7)
    13%
    (1)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    M
    Marta Margeirsdóttir (Hafnarfjordur)

    AIO bleyjur með vasa og auka búster - Bambus/microfiber - 4ra laga - OS 5-16kg

    B
    Bryndís Gísladóttir (Kopavogur)
    Mjög þægileg og falleg

    Þessi bleyja kom mér á óvart. Ég hafði prufað AIO bleyju frá öðrum framleiðanda og var alls ekki að fíla hana. En þessi var allt öðruvísi. Mun þægilegri í notkun, ekki eins klunnaleg og bara mjög góð. Og ekki skemmir hvað þær eru fallegar líka :)

    S
    Sóley Rún (Hofn)
    AIO bleyjur

    Mjög góðar og þægilegar í notkun. Svo skemmir ekki fyrir hvað munstrin eru falleg🫶🏼

    K
    Karitas (Akureyri)
    Rakadrægar og SVO fallegar

    Við elskum þessar fallegu, rakadrægu og einföldu bleyjur. Bústerinn getur verið smellt á eða sett í vasann sem okkur finnst mikill kostur. Þessar hafa aldrei lekið hjá okkur þrátt fyrir mikið piss 🤌

    Þ
    Þórunn Árnadóttir (Reykjavik)
    Einfaldar og þægilegar

    Mjög þægilegar í notkun og einfalt fyrir alla að nota ekki bara foreldra. Kemur með auka búster þegar maður þarf auka rakadrægni. Bústerinn smellist á og helst vel í bleyjunni.

    4.990 kr

    Afhverju fjölnota?

    Fyrir Jörðina

    Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

    Fyrir sparnaðinn

    Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

    Fyrir heilsuna

    Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.