Bare and Boho

Bambusbómullar lekahlífar með netapoka - 3 pör í pakka

4.990 kr

Áætlaður afhendingartími milli nóvember 13 og nóvember 15.

Uppgötvaðu umhverfisvænar, rakadrægar og einstaklega fallegar fjölnota brjóstalekahlífar frá ástralska taubleyjuframleiðandanum Bare and Boho. Þessar lekahlífar eru hannaðar til að veita þér hámarks þægindi bæði á meðgöngu og eftir fæðingu.

Helstu eiginleikar

  • Þrjú pör í pakka: Hver pakki inniheldur þrjú pör af lekahlífum í fallegum munstrum.
  • Netapoki fyrir þvott: Meðfylgjandi netapoki gerir þvottinn einfaldan og þægilegan.
  • Umhverfisvæn efni: Ytra lag úr vatnsheldum polyester og TPU laminate, innra lag úr þriggja laga lífrænni mjúkri bambus-bómullarflís.
  • Eiturefnalaus: Vörurnar eru hannaðar með viðkvæmar og sárar geirvörtur í huga.
  • Stærð: 13,5 cm í ummál, hentar flestum mæður vel.

Merkið

Bare and Boho er ástralskt vörumerki sem framleiðir fjölnota nauðsynjavörur fyrir börn og konur. Vörurnar þeirra eru framleiddar í Kína, í Sedex vottuðum verksmiðjum til að tryggja hreinlæti og öruggar vinnuaðstæður starfsfólks. Allur textíll frá vörumerkinu era OEKO-TEX eða GOTs vottaður og öll mynstrin eru sköpuð af  listamönnum víðsvegar úr heiminum. 

 

Við mælum með að þvo allar fjölnota nauðsynjavörur og aukahluti með PUL efni á 60° þó þvottaleiðbeiningar á þvottamiðum frá framleiðendum segi 30° eða 40°. Flestar, ef ekki allar fjölnota nauðsynjavörur þola 60° þvott.

Athugið samt sérstaklega að framleiðendur geta fyrrað sig undan ábyrgð hafi þvottaleiðbeiningum frá framleiðanda ekki verið fylgt.

Þvottarútína

Við mælum heilshugar með að að þvo alla aukahluti með PUL-efni með öðrum PUL vörum og samnýta þannig þvottinn.

Þurrkun

Við mælum með að þurrka allar vörur með PUL-i á snúru. Ef þú þarft að nota þurrkara skaltu nota lága hitastillingu.

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 30 daga. Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.

Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Based on 1 review
0%
(0)
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
E
Eydís Birta Þrastardóttir (Reykjanesbaer)
Flott stærð og góð gæði!

Gef 4 stjörnur þar sem þetta er í dýrari kanntinum en er mjög ánægð með gæðin og stærðina! Þetta fyllir mun betur í haldarann en aðrar fjölnota lekahlífar sem ég á :)

4.990 kr

Afhverju fjölnota?

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.