Pisi

Mini hemp búster

Hamp- og bómullar búster
Þunnur og grannur búster frá Pisi sem hægt er að bæta í hvaða bleyju sem er án þess að gera hana fyrirferðarmikla. Bústerinn tilheyrir hluta af innra lagi bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru rakadrægu efni. Búster er gerður til að auka við rakadrægni og gæti hentað vel til dæmis í næturbleyjur eða dagbleyjur sem þurfa að endast í tiltölulega langan tíma, til dæmis yfir lúr í lengri kantinum. 

Stærðir

Bústerinn er um 32x11 cm og gæti minnkað um allt að 8% eftir fyrsta þvott. 

Þvottur

Má þvo á allt að 60° og þurrka á lágum hita í þurrkara. Þó ber að nefna að bústerinn er þunnur og sem slíkur er hann sérlega snöggur að þora á snúru, ætti aðeins að taka nokkrar klukkustundir jafnvel á köldum vetrardegi. Þunnar bleyjur hreinsast almennt mjög vel í þvotti og sumir telja að þunnar bleyjur bjóði upp á besta hreinlætið í úrvali taubleyja. 

Bleyjur úr náttúrulegum efnum þarf að þvo nokkrum sinnum til að fjarlægja náttúrulegar olíur úr efninu og ná þannig upp rakadrægni efnisins. Þetta á einnig við um bústerinn. 

Efni

Bústerinn er gerður úr 55% hampi og 45% bómull. Efnið er 350 GSM. 

Hjá Pisi er mikið lagt upp úr að velja efni af miklum gæðum, bæði með tilliti til endingar en ekki síður uppruna efnisins og við hvaða aðstæður það er framleitt. 

Framleiðsla

Vörurnar frá Pisi eru framleiddar í heimalandinu Eistlandi af eigandanum sjálfum og einnig í samvinnu við hæfileikaríka saumakonu. Saman færa þær okkur handverksvörurnar frá Pisi. 

 

1.290 kr

Áætlaður afhendingartími milli janúar 02 og janúar 04.

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

1.290 kr

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.