Bare and Boho

Taubindi - Lífræn bómull - Medium Flow

2.390 kr

Áætlaður afhendingartími milli janúar 03 og janúar 05.

Fáðu þér taubindi með miðlungs rakadrægni, hannað til að veita þér fullkomna vörn á meðan tíðir standa eða eftir barnsburð. Þessi fjölnota bindi eru einnig frábær fyrir úthreinsun og þvagleka, sem gerir þau að nauðsynlegum hluta í hversdagslífinu.

Helstu eiginleikar:

  • Góð rakadrægni: Hentar vel bæði fyrstu dagana og síðustu dagana á blæðingum
  • Aðlögunarhæfni: Vængirnir eru stillanlegir í tvær mismunandi stærðir, svo bindið passi fullkomlega við nærbuxurnar.
  • Fjölnota notkun: Einnig hægt að nota fyrir útferð, þvagleka eða sem úthreinsunarbindi.
  • Umhverfisvænn valkostur: Dregur úr notkun og urðun einnota tíðabinda.

Efni:

  • Ytra lag úr 100% endurunnum pólýester með vatnsheldu TPU laminate.
  • Light Flow og Medium Flow bindi innihalda 2 lög af lífrænni bómull.
  • Heavy flow og Ultra/Maternity Flow innihalda 3 lög af lífrænni bómull.

Af hverju að velja taubindi?

Þegar þú hefur prófað fjölnota bindi, munu einnota tíðabindi líklega tilheyra fortíðin. Taubindin festast ekki við húðina, þau hafa minni lykt, og stuðla að heilbrigðari flóru þarna niðri. Með því að velja taubindi, ertu ekki aðeins að huga að þinni eigin heilsu, heldur ertu einnig að vernda umhverfið okkar.

Merkið

Bare and Boho er ástralskt vörumerki sem framleiðir fjölnota nauðsynjavörur fyrir börn og konur. Vörurnar þeirra eru framleiddar í Kína, í Sedex vottuðum verksmiðjum til að tryggja hreinlæti og öruggar vinnuaðstæður starfsfólks. Allur textíll frá vörumerkinu era OEKO-TEX eða GOTs vottaður og öll mynstrin eru sköpuð af  listamönnum víðsvegar úr heiminum. 

Við mælum með að þvo flestar fjölnota nauðsynjavörur og aukahluti með PUL efni á 60° þó þvottaleiðbeiningar á þvottamiðum frá framleiðendum segi 30° eða 40°. Flestar fjölnota nauðsynjavörur þola 60° þvott.

Athugið samt sérstaklega að framleiðendur geta fyrrað sig undan ábyrgð hafi þvottaleiðbeiningum frá framleiðanda ekki verið fylgt.

Þumalputtareglur

  • Tíða- og lekavörur má þvo á 40-60°
  • Hengið upp til þerris (þurrkunartími 16-24klst)
  • Ekki er mælst til þess að þurrka tíða- og lekavörur í þurrkara nema á lágum hita.
  • Notið mild þvottaefni án ensíma.
  • Engin mýkingarefni.

Geymsla notaðra tíða- og lekavara

Við mælum með því að skola allar tíða- og lekavörur með köldu vatni og vinda mest úr áður en þær settar í geymslu fyrir þvott. Þannig má koma í veg fyrir að blettir festist í innra efninu.

Notaðar lekavörur skal geyma á baðherbergi eða í þvottahúsi í opnu íláti eða góðum geymslupokum sem lofta. Við mælum sterklega með litlum blautpoka og hafa rennilásinn opinn, eða netaþvottapoka, en það er einnig í lagi að nota bala sem tryggir gott loftflæði. 

Pro tip: Það er í góðu lagi að að geyma og þvo tíða- og lekavörurnar þínar með taubleyjunum eða handklæðunum.

Þvottarútína

Ef þú skolar tíða- og lekavörurnar þínar vel með köldu vatni strax eftir notkun þá dugar oftast að þvo vörurnar á 40-60°C með þeim þvotti sem hentar þér.

Sjá nánar um þvott á tíða- og lekavörum hér

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Based on 1 review
0%
(0)
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
K
Karen H.R.S. (Akureyri)

Mjög þægileg og góð bindi

2.390 kr

Afhverju fjölnota?

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.