Cocobutts markaðstorg

Julicia ullarnýburableyja með riflás og fitted terry bleyja með vasa

Julicia er þýskt taubleyjumerki sem við vorum einu sinni að íhuga á að bjóða upp á en ekki varð úr. Þetta er ullarskel með ull sem innra lag og bómull ytra lag ásamt fitted terry bleyju sem hægt er að bústa með auka innleggi og þarf að festa með taubleyjuklemmu eða nælum sem er selt sér. 

Þessi pakki er fullkominn fyrir foreldra sem eru að nýta sér Bleyjulaust uppeldi eða EC aðferðina (Elimination Communication).

Vilt þú selja vörurnar þínar?

Myndir þú vilja selja þinn fjölnota taubleyjuvarning (hvaðan sem er) eða aðrar notaðar vörur frá okkur á Cocobutts markaðstorginu? Við erum með nokkrar pælingar í gangi þannig ef þú hefur áhuga hvetjum við þig til þess að senda okkur línu á info@cocobutts.is og skoðum það saman nánar!

2.500 kr

Áætlaður afhendingartími milli desember 29 og desember 31.

Afhending
Ókeypis afhending innan Íslands á pöntunum yfir 15.000 kr. Sendingarkostnaður er sýndur í greiðsluferlinu og er reiknaður út frá þyngd.

Þó við leggjum okkur fram við að pakka rétt, geta mistök gerst. Við biðjum ykkur vinsamlegast að tilkynna um villur eða skort á pöntunum innan 14 daga frá móttöku. Ekki er hægt að krefjast skaðabóta vegna vöntunar eftir 14 daga.

Skil og skipti
Við bjóðum upp á að skipta um skoðun innan 3ja mánaða (90 daga). Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er á info@cocobutts.is ef þú vilt skila eða skipta einhverjum vörum í pöntuninni þinni.

Fyrir skil á vörum verða vörurnar að vera ónotaðar og í sama ástandi og þú fékkst þær í, þar á meðal óþvegnar. Við getum ekki tekið á móti vörum sem hafa verið þvegnar fyrir skil.

Ábyrgð
Framleiðsluábyrgð hjá framleiðendum vörumerkja Cocobutts er 6-12 mánuðir frá kaupdegi og er misjafnt eftir vörumerkjum, svo framarlega sem leiðbeiningar um umhirðu hefur verið fylgt.
Lestu meira

Deila

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Fyrir Jörðina

Hefðbundnar einnota nauðsynjavörur taka allt að 800 ár að brotna niður í náttúrunni og mörg tugi milljóna einnota nauðsynjavara eru urðuð á Íslandi á hverju ári með tilheyrandi afleiðingum á lífríki lands og sjávar.

Fyrir sparnaðinn

Með því að velja fjölnota sparar þú heilmikinn pening sem gæti nýst þér í eitthvað svo miklu skemmtilegra en einnota sorp.

Fyrir heilsuna

Einnota bleyjur, tíðabindi, túrtappar og aðrar einnota lekavörur innihalda flest kemísk efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og lífríki lands og sjávar bæði til skemmri og lengri tíma. Veldu betur fyrir þig og barnið þitt.